Litlir lærisveinarFræðsluefni fyrir Æskulýðsdag þjóðkirkjunnar 2019
Efnið sem hér er að finna er ætlað til notkunar í barnastarfi þjóðkirkjunnar vikurnar fyrir æskulýðsdaginn 4.mars. Í fræðsluefninu er unnið með þemu og spurningar sem tengjast umhverfi, réttlæti og páskaföstunni. Þetta efni hvílir á réttlætisboðun Jesú og þeirri túlkun að við séum samverkafólk Guðs í því að gera samfélagið okkar og jörðina sjálfa að betri stað. Efnið krefst smá undirbúnings og ígrundunar, skoðið það vel fyrir hverja stund. |
Fyrsta samvera |
|
Umfjöllunarefni þessarar stundar er líffræðileg fjölbreytni og hvað Biblían getur sagt okkur um hlutverk okkar og ábyrgð gagnvart jörðinni.
Meðfylgjandi eru glærur til að nota við fræðslu. |
Önnur samvera |
|
Umfjöllunarefni þessarar stundar er réttlæti og sanngirni, hvernig við lifum og hvað boðskapur Jesú hefur að segja um réttlátan heim.
|
Þriðja samvera |
|
Í þessari stund fjöllum við um hnattrænt réttlæti og sýnum hvernig við hér á Íslandi getum haft áhrif á líf fólks um allan heim.
|
Fjórða samvera |
|
Hér er sjónum beint að páskaföstunni og æskulýðsdeginum. Boðið er upp á ólík verkefni fyrir yngri- og eldri barnastarf.
|
Öllum er frjálst að hlaða þessu efni niður, afrita það, endurvinna, breyta og deila svo lengi sem tilgangurinn er að nota það í barna- og æskulýðsstarfi eða öðru kirkjustarfi.